Fara í efni

Eitrun af völdum Clostridium botulinum greinist á Íslandi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þann 18. janúar síðastliðinn var bótulismi staðfestur hjá fullorðnum einstaklingi hér á landi. Fyrstu einkenni byrjuðu þann 12. janúar og var eitrunin staðfest tæpri viku síðar. Eitrunarinnar hefur ekki orðið vart hjá öðrum einstaklingum. Uppruna eitrunarinnar er ákaft leitað í samvinnu við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, Matvælastofnun, sóttvarnalækni auk sýkla- og veirufræðideild Landspítala og rannsóknarstofu Matís.

Bótulismi er eitrun af völdum Clostridium botulinum, sem er grómyndandi, loftfælin baktería. Bakterían getur myndað mjög öflugt eitur (botulinum toxin) og ef hún nær að vaxa í matvælum veldur hún alvarlegum veikindum með lömunum sem leitt geta til dauða. Tími frá neyslu mengaðra matvæla til veikinda er stuttur, frá nokkrum klukkustundum til þriggja sólarhringa og helstu einkenni eru hratt vaxandi lamanir. Í yfirstandandi rannsókn er ekkert sem bendir til að upprunann megi finna í matvælum sem eru í dreifingu.

Bótulismi er mjög sjaldgæf eitrun sem hefur aðeins greinst hér á landi þrisvar sinnum, fyrst árið 1949 þegar fjórir menn veiktust eftir neyslu súrsaðs dilkakjöts, aftur 1981 þegar fjögurra manna fjölskylda veiktist og síðast árið 1983 þegar móðir og barn veiktust eftir að hafa borðað súrt slátur sem bakterían fannst í.

Algengustu orsakir bótulisma eru heimalöguð matvæli eins og kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir, sem eru oftast niðursoðin, grafin, súrsuð eða gerjuð og gjarnan í lofttæmdum umbúðum. Því er mikilvægt að vanda vel til verka við slíka vinnslu, bæði í heimahúsum og í matvælafyrirtækjum. 

Almennar ráðleggingar við meðhöndlun matvæla:

  • Forðist bólgnar/gallaðar niðursuðudósir/umbúðir
  • Skolið grænmeti og ávexti fyrir notkun
  • Haldið hráum og elduðum matvælum aðskildum
  • Hitið matvæli nægjanlega mikið og tryggið hraða kælingu ef þeirra er ekki neytt strax
  • Haldið kælivörum við 0–4 °C
  • Fylgið leiðbeiningum og geymsluþolsmerkingum á matvælum

Nánari upplýsingar má finna á vef Matvælastofnunar og embættis landlæknis

Matvælastofnun
Sóttvarnalæknir 
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra


Getum við bætt efni síðunnar?